Fréttaumfjöllun

Nýtt fyrirtæki tekur yfir framkvæmdir á Sementsreit.

Sementsreiturinn

Nýtt fyrirtæki, Nova Progressus ehf., hefur fest kaup á fasteigninni Sementsbraut 13-15 á Akranesi og hyggst ljúka byggingu hennar á næstu mánuðum m.a. í samstarfi við iðnfyrirtæki á Akranesi. Áðurnefnt hús stendur á innanverðum Sementsreitnum og hefur verið í byggingu á liðnum árum en framkvæmdir við það stöðvuðust fyrir nokkru síðan. Það var fyrirtækið Fastefli ehf. sem upphaflega fékk úthlutað reit á svæðinu árið 2022 þar sem var gert ráð fyrir byggingu 368 íbúða auk verslunar- og þjónusturýma.

Að fyrirtækinu Nova Progressus ehf. standa að jöfnu reyndir aðilar. Annars vegar er það fyrirtækið Perago Bygg ehf. í Kópavogi sem hefur verið umsvifamikið í byggingariðnaði víða um land á undanförnum árum. Hins vegar er það fyrirtækið VÓK ehf. sem er í eigu Kristins Sigvaldasonar eiganda Borgarverk í Borgarnesi sem hefur verið mjög umsvifamikið í verktakaiðnaði landsins á undanförnum árum.

Þorsteinn Örn Guðmundsson framkvæmdastjóri Perago Bygg ehf. staðfesti í samtali við Skessuhorn að hið nýja félag hefði fest kaup á Sementsbraut 13-15 af Framkvæmdafélaginu Sjávarsýn ehf. sem fyrir nokkru tók yfir verkefnið á Sementsreitnum af Fastefli ehf. Þorsteinn Örn segir að Arion-banki hafi komið að samningnum og muni einnig koma að fjármögnun framkvæmda ásamt fjármögnun eigenda hins nýja fyrirtækis.

Aðspurður segir Þorsteinn Örn að fyrsta verkefni hins nýja félags sé að ljúka byggingu hússins. Þegar því lýkur verði frekari möguleikar skoðaðir á umræddum byggingareit. Akraneskaupstaður bauð fyrr á þessu ári út fleiri reiti á Sementsreitnum en engin tilboð bárust. Aðspurður hvort sú staðreynd dragi ekki úr áhuga á svæðinu segir Þorsteinn svo alls ekki vera. Að sínum dómi sé Sementsreiturinn afar spennandi verkefni. Ástandið á byggingamarkaði nú um stundir sé krefjandi en hann sé mjög bjartsýnn á framhaldið enda sé fjármögnun kaupa og framkvæmda í þessum áfanga þeirra að fullu lokið.

Þorsteinn Örn segir framkvæmdir við húsið þegar hafnar. Þessa dagana sé verið að taka til á svæðinu og gera það klárt til framkvæmda. Þegar hafi verið gengið frá samningum við SF smiði ehf. á Akranesi um alla byggingarvinnu í húsinu. Nú sé unnið að samningum við önnur iðnfyrirtæki á Akranesi um aðrar framkvæmdir við húsið. „Að athuguðu máli viljum við að sem flestir sem að þessu verkefni koma verði úr nærumhverfinu. Við erum nýir aðilar á svæðinu og við viljum, í ljósi reynslunnar við þetta hús, sanna okkur sem allra fyrst. Þetta hús er afar spennandi kostur, það er á frábæru svæði og þar af leiðandi fyrir allra augum og við ætlum því að standa eins vel að þessu verkefni og kostur er“.

Á liðnum mánuðum og misserum hefur húsið að einhverju leyti legið undir skemmdum og verður fyrsta verkefnið því að komast fyrir þær skemmdir. Að því loknu fara framkvæmdir á fullt og vonast Þorsteinn Örn eftir því að fyrstu íbúðir í austurhluta hússins verði tilbúnar til afhendingar ekki síðar en í janúar eða febrúar á næsta ári. Hann segist vera bjartsýnn á framhaldið á Akranesi. „Við höfum komið að verkefnum víða um land á undanförnum árum m.a. á Akureyri þar sem við tengjumst hótelverkefni þar um slóðir. Ég hef fulla trú á þessu verkefni og vona að fleiri fylgi í kjölfarið á Akranesi.“

Nýtt gagnaver atNorth vígt á Akureyri.

Tölvumynd af gagnaveri

Perago Bygg ehf. semur við atNorth um byggingu tveggja gagnavershúsa á Akureyri.

Fulltrúar atNorth og Perago við gagnavershús í byggingu á Akureyri

Perago Bygg ehf. hefur samið við atNorth um byggingu tveggja gagnavershúsa á Akureyri sem munu verða tilbúin undir starfsemi vorið 2023. Byggingarnar tvær telja samtals um 2.600 m2 með tilheyrandi tengibyggingum og starfsmannaaðstöðu. Húsin eru byggð upp af límtrés burðarvirki sem er reist á steyptum undirstöðum og klædd að utan með steinullar samlokueiningum frá Límtré Vírnet.

„Perago Bygg sérhæfir sig í reisingu húsa sem þessara og það er gríðarlega spennandi að fá tækifæri til að koma að uppbyggingu gagnavers húsanna hér á Akureyri“ segir Garðar Örn Guðmundsson, Framkvæmdastjóri Framleiðslu hjá Perago Bygg

„atNorth er gríðarlega ánægt með að hefja loks uppbyggingu á Akureyri og við eru spennt fyrir samstarfinu við Perago Bygg, sem hafa mikla reynslu og þekkingu af reisingu húsa í samræmi við okkar kröfur“ segir Jóhann Þór Jónsson, forstöðumaður hjá atNorth.

Bygging gagnavers á Akureyri í verktöku.